Aðstoð og ráðgjöf
Við aðstoðum og veitum upplýsingar um Styrktarsjóðinn í gegnum vefspjall, tölvupóst, í síma 595-5100 eða á skrifstofu okkar í Borgartúni 27.
Þjónustuverið er opið mánudaga til fimmtudaga milli kl. 9:00 - 15:00 og föstudaga milli kl. 09:00 - 13:00.
Líkamsrækt
Félagar fá allt að 20.000 króna styrk vegna líkamsræktar og íþróttaiðkunar.
Meðferð á líkama og sál
Félagar fá allt að 43.000 króna styrk vegna meðferðar hjá löggiltu heilbrigðisstarfsfólki.
Krabbameinsleit
Félagar fá styrki vegna krabbameinsleitar og skoðunar.
Fæðingarstyrkur
Félagar fá 175.000 króna fæðingarstyrk vegna fæðingar hvers barns.
Tæknifrjóvgun
Félagar fá allt að 120.000 krónur í styrk vegna tækni- eða glasafrjóvgunar.
Heyrnartæki
Félagar fá allt að 100.000 króna styrk til kaupa á heyrnartækjum.
Áhættumat vegna hjartasjúkdóma
Félagar fá allt að 10.000 króna styrk vegna áhættumats hjartasjúkdóma.
Dvöl á heilsustofnun
Félagar fá allt að 50.000 króna styrk á tveggja ára fresti vegna endurhæfingar á heilsustofnunum.
Dánarbætur
Greiddar eru allt að 350.000 krónur í dánarbætur til erfingja vegna fráfalls félaga í sjóðnum.
Starfstengd áföll eða óvænt starfslok
Félagar fá styrk til að vinna úr áfalli í starfi eða í kjölfar óvæntra eða erfiðra starfsloka.
Ferðastyrkur vegna alvarlegra veikinda
Félagar fá styrki til ferða til útlanda í lækningaskyni.
Annar heilbrigðiskostnaður
Við sérstakar aðstæður, s.s. mikil útgjöld umfram 150.000 kr. sem rekja má til veikinda eða slysa sjóðfélaga sjálfs, getur sjóðstjórn veitt styrk allt að 150.000 kr. á hverjum 12 mánuðum. Greitt er 30% af styrkhæfum kostnaði.
Ættleiðingarstyrkur
Félagar fá styrki vegna ferða til útlanda til að sækja barn til ættleiðingar.
Sjúkradagpeningar
Félagar fá sjúkradagpeninga vegna ólaunaðrar fjarveru frá vinnu sem nema 80% af grunni inngreiðslna síðastliðna fjóra mánuði fyrir óvinnufærni.