Félagsfólk í aðildarfélögum BHM getur öðlast rétt til sækja um styrk hjá Starfsþróunarsetrinu. Iðgjald til Starfsþróunarsetursins er 0,7% af heildarlaunum.
- Starfi félagsfólk hjá stofnunum sem falla undir lög nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna telst það hafa fullgilda aðild um leið og greiðslur iðgjalda hefjast.
- Starfi félagsfólk á almennum vinnumarkaði verður réttur þess til að sækja um styrk virkur þegar iðgjöld hafa verið greidd í samtals sex mánuði, þar af í samfellda þrjá mánuði áður en sá atburður sem leiðir til styrkumsóknar á sér stað.
Félagsaðild að Starfsþróunarsetrinu þarf að vera orðin virk áður en verkefnið, sem sótt er um styrk fyrir, hefst. Það á við um félagsfólk á opinberum og almennum vinnumarkaði.
Lágmarksiðgjöld
Iðgjöld til setursins eru 0,7% af heildarlaunum.
Fullur styrkur
- Sé mánaðarlegt iðgjald sem samsvarar 0,7% af heildarlaunum einstaklings 3.500 kr. eða hærra, veitir það rétt á fullum styrk, 600.000 kr. að hámarki á 24 mánaða fljótandi tímabili. Heildarlaun sjóðfélaga eru þá 500.00 kr. á mánuði eða hærri.
Hálfur styrkur
- Sé mánaðarlegt iðgjald sem samsvarar 0,7% af heildarlaunum einstaklings á bilinu 1.750 kr. - 3.500 kr. veitir það rétt á hálfum styrk, 300.000 kr. að hámarki á 24 mánaða fljótandi tímabili. Heildarlaun sjóðfélaga eru þá á bilinu 250.000 kr. - 499.999 kr. á mánuði.
Engin styrkur
- Iðgjald undir 1.750 kr. veitir ekki rétt til styrks. Heildarlaun sjóðfélaga eru þá undir 250.000 kr. á mánuði.
Ef vafi leikur á því hvort félagsfólk eigi rétt á fullum eða hálfum styrk þá er reiknað út meðaltal inngreiðslna iðgjalda síðustu þriggja mánaða, talið frá þeim degi sem umsókn berst til sjóðsins.
Fæðingarorlof
Félagsfólk sem fer í fæðingarorlof, og velur að greiða stéttarfélagsgjald meðan á því stendur, viðheldur áunnum réttindum í setrinu á því tímabili sem það þiggur fæðingarorlofsgreiðslur frá Fæðingarorlofssjóði.
- Sé valið að greiða ekki stéttarfélagsgjald af fæðingarorlofsgreiðslum getur það leitt til þess að viðkomandi missi rétt sinn til styrkja.
Launalaust leyfi
Félagsfólk í launalausu leyfi á rétt á styrk samkvæmt reglum Starfsþróunarsetursins á fyrstu sex mánuðum leyfisins að öðrum skilyrðum uppfylltum. Með umsókn þarf að skila inn staðfestingu frá vinnuveitanda þess efnis að viðkomandi sé í launalausu leyfi.
Styrkir fyrir einstaklinga í veikindum og á endurhæfingarlífeyri
Félagsfólk heldur réttindum sínum á því tímabili sem það fær greidda sjúkradagpeninga frá Sjúkrasjóði BHM eða Styrktarsjóði BHM.
Félagsfólk sem fær greiddan endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun heldur réttindum í allt að 12 mánuði.
- Aðildarfélögum er heimilt að framlengja þetta tímabil upp í þrjú ár gegn greiðslu 0,7% iðgjalds til Starfsþróunarsetursins frá upphafi töku endurhæfingarlífeyris.
Atvinnumissir
Við atvinnumissi heldur félagsfólk réttindum í allt að 12 mánuði, frá upphafi atvinnuleysis ef valið er að greiða stéttarfélagsgjald af atvinnuleysisbótum. Aðildarfélögum er heimilt að lengja þetta tímabil á meðan félagsfólk fær greiddar atvinnuleysisbætur frá Atvinnuleysistryggingarsjóði, greiði það 0,7% iðgjald af atvinnuleysisbótum til Starfsþróunarsetursins frá upphafi atvinnuleysistímabils.
- Sé valið að greiða ekki stéttarfélagsgjald af atvinnuleysisbótum getur það leitt til þess að viðkomandi missi rétt sinn til styrkja.
Lok ráðningarsambands
Ef ekkert af ofangreindu á við, mun aðild að Starfsþróunarsetrinu falla niður að þremur mánuðum liðnum frá því síðast var greitt iðgjald til Starfsþróunarseturs.