Vanmat á menntun mun hafa neikvæð áhrif á lífskjör og velferð
Á undanförnum árum hefur arðsemi háskólamenntunar á Íslandi verið mun minni en á öðrum Norðurlöndum. Samkvæmt skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands frá 2022, sem unnin var fyrir BHM, er arðsemi háskólamenntunar hérlendis um 40% minni en að meðaltali innan OECD. Staðreyndin er sú að laun háskólamenntaðra hafa staðið í stað að teknu tilliti til verðbólgu á þessari öld, á meðan kaupmáttur launa almennt hefur aukist um og yfir 60%. Þetta vanmat hefur leitt til þess að ungt fólk sækir síður í háskólanám á Íslandi, sem getur haft neikvæð áhrif á samkeppnishæfni þjóðarinnar, lífskjör og velferð til lengri tíma.
Réttmætt mat á háskólamenntun er allra hagur
Það er mikilvægt að átta sig á því að réttmætt mat á háskólamenntun til launa kemur ekki niður á öðru launafólki. Það er vel hægt að meta háskólamenntun að verðleikum og á sama tíma standa vörð um og bæta kjör láglaunafólks. Skilyrðislaus og aukinn jöfnuður tryggir ekki einn og sér aukna velferð - þvert á móti gæti sanngjarnara mat á menntun leitt til aukinnar verðmætasköpunar og bættrar velferðar fyrir samfélagið allt.
Munum menntunina við kjörkassann
Menntun, þekking og nýsköpun eru helsta undirstaða hagsældar á Vesturlöndum. Með því að skapa hvata fyrir einstaklinga á Íslandi til að hámarka hæfileika sína, hvort sem er með háskólanámi eða iðnnámi, stuðlum við að nýsköpun, framþróun og aukinni samkeppnishæfni Íslands á alþjóðavettvangi. Þegar við göngum að kjörborðinu í næstu viku skulum við hafa mikilvægi háskólamenntunar í huga. Það eru samfélagsleg gæði fólgin í því að ungt fólk horfi jákvæðum augum til þess að afla sér menntunar. Það ýtir undir velferð, eykur hagsæld og styður við efnahagslegan stöðugleika. Slík viðhorf eru til hagsbóta fyrir okkur öll, hvar sem við erum í tekjustiganum.
Greinin birtist á Vísi 22. nóvember 2024