Opnunartími BHM yfir hátíðarnar

Skrifstofa BHM verður lokuð milli jóla og nýárs en þjónustuver svarar símtölum og skilaboðum

Skrifstofa og þjónustuver BHM verða lokuð á aðfangadag, jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag. Dagana 23, 27 og 30 desember svarar þjónustuver BHM eingöngu fyrirspurnum sem berast í gegnum netspjall, töluvpósta og síma en ekki verður hægt að fá afgreiðslu á skrifstofu BHM þessa daga.

Þjónustuver og skrifstofa verða opin með hefðbundnum hætti frá og með fimmtudeginum 2. janúar.

Við minnum á að síðasti útgreiðsludagur styrkja úr sjóðum BHM er 20.12.2024.

BHM óskar félagsfólki og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar samstarfið á vinnumarkaði.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Opnunartími þjónustuvers:
mán. til fim. 9:00 - 15:00,
fös. 9:00 - 13:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00,
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt