Opnunartími BHM yfir hátíðarnar
20. desember 2022
Opnunartími skrifstofu og þjónustuvers BHM tekur mið af hátíðunum
Þjónustuver BHM er lokað fyrir almennar heimsóknir milli jóla og nýárs en öll þjónusta verður veitt í gegnum netspjall, tölvupóst og í síma 595-5100.
Lokað verður á skrifstofu BHM og í þjónustuveri aðfangadag jóla, jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag.
Þjónustuverið verður starfrækt með hefðbundnum hætti frá og með 2. janúar 2023.
BHM óskar félögum og landsmönnum öllum gleðlegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar samstarfið á vinnumarkaði.