Starfsþróunarsetur háskólamanna auglýsir eftir framkvæmdastjóra
31. mars 2025
Starfsþróunarsetur háskólamanna leitar að framsýnum framkvæmdastjóra sem hefur áhuga, getu og drifkraft til að leiða uppbyggingu og breytingar á setrinu í takt við þróun á vinnumarkaði.
Hlutverk Starfsþróunarseturs háskólamanna er að styðja við markvissa starfsþróun og faglegan framgang háskólamenntaðs starfsfólks í þeim félögum BHM sem eiga aðild að setrinu. Jafnframt hefur setrið það hlutverk að efla skipulega starfsþróun á vettvangi stofnana.