Viska semur við Félag atvinnurekenda
1. nóvember 2024
Viska og Félag atvinnurekenda (FA) undirrituðu nýverið nýjan kjarasamning. Með samningnum verður til fyrsti kjarasamningur fyrir félagsfólk Visku sem starfar hjá aðildarfélögum FA.
Samningurinn tók gildi í dag og gildir til 1. febrúar 2028. Hann er í meginatriðum í samræmi við aðra samninga sem gerðir hafa verið á almennum vinnumarkaði í yfirstandandi kjaralotu, að því er segir á vef Visku.