Iðgjaldaskil
BHM innheimtir félags- og sjóðagjöld til launagreiðenda, þ.m.t. sjálfstætt starfandi einstaklinga, fyrir öll 24 aðildarfélög bandalagsins.
Sjálfstætt starfandi ber að senda inn skilagreinar fyrir hvern launamánuð með sundurliðun á öllum iðgjöldum merkt réttu stéttarfélagsnúmeri til innheimtu BHM, fyrir gjalddaga eða 15. dag hvers mánaðar.
Kröfur stofnast í netbanka þegar skilagrein hefur borist nema óskað hafi verið eftir öðrum greiðslumáta eða ef ávallt hefur verið millifært. Eigi greiðsla sér ekki stað fyrir eindaga eru reiknaðir dráttarvextir frá gjalddaga til greiðsludags. Gjalddagi er 15. dagur næsta mánaðar eftir launamánuð en eindagi síðasti virki dagur gjalddaga mánaðar.