Yfirlýsing frá BHM, BSRB og KÍ

Í tilefni af tillögum starfshóps um hagræðingu í ríkisrekstri

Í kynningu starfshóps forsætisráðherra um hagræðingu í ríkisrekstri sem birt var 4. mars kom fram að fjöldi tillagna sem barst frá almenningi hafi ekki verið tekinn fyrir þar sem þær fælu í sér pólitísk úrlausnarefni. Formaður starfshópsins nefnir í því sambandi starfsemi ÁTVR og RÚV, rekstur ráðherrabíla, fækkun sendiráða og pólitískra aðstoðarmanna ráðherra. Í því ljósi er umhugsunarefni að hópurinn skuli líta svo á skerðing réttinda hjá starfsfólki ríkisins sé ekki pólitískt mál.

Undanfarin ár hafa sérhagsmunahópar atvinnurekenda á almennum vinnumarkaði gert þá kröfu að ákvæði um áminningu verði fellt brott úr starfsmannalögum. Meginröksemdirnar hafa verið að jafna þurfi réttindi milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins og auka hagkvæmni í ríkisrekstri. Þessum kröfum hafa hins vegar ekki fylgt útreikningar eða greiningar á ætluðum sparnaði, sem veldur því að tillögurnar hafa ekki þótt trúverðugar.

Í mörgum tillögum starfshópsins er vísað til fyrirmynda frá hinum Norðurlöndunum. Þá er ekki óeðlilegt að litið sé til reglna um áminningarskyldu hjá frændþjóðum okkar. Þar gilda reglur aðvörun eða áminningu um alla á vinnumarkaði. Hér eiga þær einungis við um starfsfólk hins opinbera. Í samanburðarskyni mætti því hugsa sér að reglurnar yrðu víkkaðar, fremur en aflagðar.

Opinberar stofnanir glíma við margvíslegan vanda, sem hefur ekki verið nægilega mikill gaumur gefinn af stjórnvöldum fram til þessa. Mikil starfsmannavelta er vandamál sem erfitt hefur reynst að ná tökum á. Kannanir sýna að margt starfsfólk sem sinnir almannaþjónustu hefur hugsað sér að skipta um starf. Þá er nokkuð hár meðalaldur fjölmennra starfsstétta og lítil nýliðun áhyggjuefni. Glímt er við vanda tengdan mikilli veikindafjarveru og manneklu á sama tíma og störfum í umönnun fjölgar m.a. vegna öldrunar þjóðarinnar. Ljóst er að vandinn sem felst í skorti á starfsfólki mun bara aukast eftir því sem tíminn líður og sá skortur er kostnaðarsamur fyrir samfélagið allt.

Í ljósi tillagna hagræðingarhóps stjórnvalda er eðlilegt að spurt sé hvort ríkisstjórnin hyggist horfa framan í þennan hóp, sem býr við álag í starfi vegna áratuga langs niðurskurðar, aðhalds, stjórnunarvanda ásamt öllum framangreindum áskorunum – og segja að mikilvægasta verkefnið framundan sé að gera stjórnendum auðveldara að segja þeim upp störfum. Það er ekki bara pólitísk tillaga heldur vanvirðing í garð fólks sem hefur haldið velferðarkerfum samfélagsins gangandi gegnum erfiða tíma, nægir að nefna efnahagshrun, heimsfaraldur og náttúruhamfarir því til staðfestingar.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Opnunartími þjónustuvers:
mán. til fim. 9:00 - 15:00,
fös. 9:00 - 13:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00,
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt